top of page
  • Black Facebook Icon

Börn Theódórs og Stefaníu

12038580_1136849569678450_5717138574530733063_o.jpg

Guðmann Theodórsson

Guðmann Theodórsson f. 1929 og l. 1930,

GudmundurTheodorsson.jpg

Guðmundur Kristján Theodórsson

Guðmundur Kristján Theodórsson fæddist á árinu 1931 í Brúarlandi á Blönduósi og ólst þar upp. Hann lést árið 2020. Hann var giftur Elínu Grímsdóttur sem var f. 1930 og l. 2023. Guðmundur var búsetur á Blönduósi alla tíð. Hann var mjólkurfræðingur og vann í Mjólkursamlagi Sölufélags Austur- Húnavatnssýslu á Blönduósi lengstan sinn starfsaldur eða í 48 ár. Fyrir þann tíma stundaði hann almenn verkamannastörf í Austur-Húnavatnssýslu. Guðmundur var virkur í bæjarstjórnarmálum og leiddi lista vinstrimanna og félagshyggjufólks um árabil.

​

Nánar um hann - smella

​

Börn þeirra:

1) María Sigríður Guðmundsdóttir 
    25. júní 1951,

2) Stefanía Theodóra Guðmundsd.
    15. október 1953

3) Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
    11. júní 1961

4) Theódór Grímur Guðmundsson

     9. mars 1966 - 12. janúar 1988

5) Agnes Drífa Guðmundsdóttir

    23. október 1970 - 21. sept 2012

6) Hrefna Bára Guðmundsdóttir

    29. júní 1974.

464209950_8503174179750993_5247896535387856347_n.jpg

Alda Theódorsdóttir

Alda Sigurlaug Theódórsdóttir er fædd 17. júlí 1932 í Brúarlandi á Blönduósi og ólst þar upp. Hún var gift Birni Eiríkssyni f. 24. maí 1927 og l. 4. janúar 2008. Alda vann við verslunarstörf um árabil og lengst hjá Kaupfélagi Húnvetninga.

​

Nánar um hana - smella

 

Börn þeirra;
1) Vigdís Björnsdóttir
    1951
2) Eiríkur Ingi Björnsson

    1956

Bella.jpg

Ísabella Theódorsdóttir

Ísabella Theodórsdóttir fæddist á Blönduósi á árinu 1933 og lést 1976. Hún ólst upp í Brúarlandi á Blönduósi. Hún var gift Friðgeiri Eirikssyni f. 1931 og l. 2021. Hún stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi. 

​

Nánar um hana - smella

​

Börn þeirra:​

1) Theodór Stefán Friðgeirsson
    11. júlí 1953

2) Eiríkur Ingi Friðgeirsson

    26. ágúst 1954

3) Ísabella Friðgeirsdóttir

    13. júní 1956

4) Bryndís G Friðgeirsdóttir

    4. nóv. 1957

5) Guðmann Friðgeirsson

    18. apríl 1959

6) Ingigerður Friðgeirsdóttir

   11. jan. 1964

Ragna2.jpg

Ragnhildur Theodórsdóttir

Ragnhildur Anna Theodórsdóttir var fædd á árinu 1936 í Brúarlandi á Blönduósi og ólst þar upp. Hún var gift Jóhanni Hauki Jóhannssyni f. 1929 og l. 2016. Þau byggðu sér hús að Húnabraut 12 á  Blönduósi, en þau fluttu síðan til Reykjavíkur. Ragnhildur starfaði alla tíð sem verslunarkona og um árabil í versluninni Kápusölunni.

​

Nánar um hana - smella

​

Börn þeirra;
1) Guðmundur Grétar Hauksson
    30. júlí 1954
2) Sigrún Jóhanna Hauksdóttir
    25. desember 1955

3) Guðmann Hauksson

    1961

4) Dóra Mjöll Hauksdóttir
    1974

5) Stefanía Dögg Hauksdóttir

    1974

© 2020 - Ábyrgðarmaður: Guðmundur G. Hauksson, Flétturima 1, 112 Reykjavík, gudmundur@gordon.is 8930014

bottom of page